Sjúkraþjálfun eftir Áhættuminnkandi aðgerðir

Sjúkraþjálfun eftir áhættuminnkandi brjóstnám

Sjúkraþjálfarar hjá Gáska eru í samstarfi við Kristján Skúla Ásgeirsson brjóstaskurðlækni og hans teymi í Klíníkinni í Ármúla.  Konum með stökkbreytt BRCA gen sem fara í áhættuminnkandi brjóstnám hjá honum stendur til boða að hitta sjúkraþjálfara um 4-6 vikum eftir aðgerð.

Einstaklingsmiðuð þjálfun

Hver einstaklingur er einstakur og því mismunandi vandamál hjá hverri konu og hverju hún finnur fyrir.  Sjúkraþjálfari tekur því viðtal og skoðun í upphafi meðferðar og metur hvað þarf til að hjálpa viðkomandi með.  Sumar konur fara t.d. í svokallaða DIEP flipaaðgerð sem er umfangsmeiri og þá er einnig skurður á kviðsvæði og þá þarf einnig að varast álag á það svæði.

Líkamsstaða

Góð líkamsstaða er lykilatriði í að láta sér líða vel eftir aðgerð. Sjúkraþjálfari leiðbeinir með bætta líkamsstöðu en hætta er á að hún versni fyrst eftir brjóstnámsaðgerð.  Algengt er að líkamsstaðan verði hokin, axlir framdregnar og staða handleggja röng.

Verkir

Verkir eru eðlilegur fylgifiskur bæði á skurðsvæði og almennir stoðkerfisverkir í kringum það t.d. í öxlum, hálsi og brjóstbaki. Sjúkraþjálfari skoðar og metur svæðið m.t.t. verkja og meðhöndlar eftir því sem þarf.

Styttingar í bandvef

Það verða oft styttingar í bandvef yfir brjóstvöðvum, holhönd og upp í axlir og háls.  Einnig verða stundum samgróningar í skurðum og eftir drenslöngur.  Þessar styttingar er hægt að vinna á með bandvefslosun/teygjum, og með því að kenna æfingar og teygjur sem hreyfa við þessu svæði.

Skert tilfinning/dofi

Tilfinning á svæðinu breytist eftir aðgerð.  Flestar konur finna fyrir tilfinningaleysi eða dofa yfir brjóstum og þar í kring og það er eðlilegt, en sú tilfinning getur aukist aftur með tímanum.

 

Vökvasöfnun

Þrátt fyrir að eitlar séu ekki fjarlægðir getur verið vökvasöfnun á svæðinu.  Vökvinn sest oft hliðlægt við brjóst eða í kringum þau.  Vökvinn getur verið bjúgur sem myndast eða blæðingar.

Hreyfing

Mikilvægt er að byrja að hreyfa sig strax, ganga og gera liðkandi æfingar til að minnka vöðvaspennu í herðum og koma í veg fyrir styttingar á vöðvum, liðpoka og bandvef. Almennt séð þarf þó að fara mjög varlega í 4-8 vikur eða á meðan gróandi er á svæðinu.  Forðast þarf áreynslu á þessum tíma t.d. erfið heimilisstörf og að lyfta þungu og allt álag á brjóstasvæði þarf að forðast upp undir 8-12 vikur eins og t.d. að ýta eða toga.

 

 

Æfingar og teygjur

Fyrir aðgerð er gott að renna yfir þessar æfingar til að finna hvernig hreyfiferlar og liðleiki á svæðinu er.  

Hér eru dæmi um liðkandi æfingar og léttar teygjur sem gott er að gera sem fyrst og helst að byrja strax daginn eftir aðgerð.  Fyrstu vikuna þarf að fara varlegar og æfingar 7 til 9 skaltu ekki gera fyrr en í fyrsta lagi viku eftir aðgerð og ekki fullan hreyfiferil í æfingu 3.  Gott er að gera æfingarnar um 2 til 3 sinnum á dag og endurtaka hverja æfingu um 5 sinnum.

1.  Snúa öxlum í hringi

Snúðu öxlunum hægt í stóran hring, fyrst 3 hringi aftur á við og svo 3 hringi fram á við.

2.  Vængjaæfing

Liggðu á bakinu, settu hendur undir hnakka (ef þú nærð ekki að spenna greipar aftan við hnakka setur þú þær yfir gagnauga fyrst og færir þær aftar eftir því sem liðleiki eykst) og láttu olnboga síga niður til hliðar eins langt og þú kemst.

3.  Lyfta höndum í baklegu

Liggðu á bakinu og haltu á priki eða spenntu greipar í kjöltu þér, lyftu höndum upp fyrir höfuð eins langt upp og þú kemst. ATH fyrstu vikuna eftir aðgerð skaltu ekki fara hærra en 90 gráður eins og sýnt er á mynd (passa að olnbogar fari ekki upp fyrir axlir).  Þessa æfingu er einnig hægt að gera sitjandi en hún er erfiðari þannig og meira styrkandi en liðkandi.

4.  Afturhreyfing í öxl

 Stattu með hendur niður með hliðum, haltu olnbogum beinum og byrjaðu á því að snúa lófum fram.  Teygðu svo handleggina aftur fyrir líkamann og ef þú getur snúðu lófunum út.  Haltu stöðunni í 3-5 sekúndur og slakaðu svo aftur. Passaðu stöðuna á hálsinum, horfðu beint fram.

5.  Liðkandi æfingar fyrir háls og hnakka

Þessar klassísku æfingar er alltaf gott að gera og sérstaklega ef spenna er á þessu svæði. Passa þarf að gera hreyfingarnar rólega og jafnvel staldra við í loka hreyfingu og halda í 10 sekúndur ef þú finnur teygju.

Horfa upp og niður: Liðkandi æfing fyrir hnakka og eðlilegt að finna teygju niður eftir hálsi og framanvert í hálsi.  

Horfa til hliðar: Passa að hakan lyftist ekki upp né niður.  

Hliðbeygja, eyra í átt að öxl: Hér er gott að staldra aðeins við í stöðunni og ýta gagnstæðri öxl niður á móti.

Kinka kolli: Þetta er lítil hreyfing og aðalmálið er hreyfing hökunnar niður á við (eins og við séum að kinka kolli) og að lengja hálsinn aftanvert upp í hnakka.

6. Hendi aftur fyrir bak

Settu höndina aftur fyrir bak og reyndu að snerta neðri brún herðablaðs, ef þú nærð ekki alla leið þá byrjar þú á að leggja hönd á mjóbak og fikrar þig svo ofar með tímanum.

 

Æfingarnar sem koma hér á eftir skaltu ekki gera fyrr en vika er liðin frá aðgerð.

 

7.  Klifra upp vegg

Stattu upp við vegg og snúðu að veggnum. Klifraðu upp vegginn eins hátt og þú kemst.

8.  Brjóstvöðvateygja

Liggðu á bakinu og láttu hendur falla út til hliðar.  Vinna má lengra inn í teygju með því að láta hendur fara hægt og rólega hærra upp í átt að höfði

9.  Hliðarbeygja

Þessa teygju þarf að fara varlega í og gera þegar æfingum 2 og 7 hefur verið náð eins og þú gerðir þær fyrir aðgerð.

Efni unnið af Sólrúnu Sverrisdóttur sjúkraþjálfara hjá Gáska sjúkraþjálfun
Í samstarfi við Klíníkina í Ármúla

Undirbúningur fyrir brjóstnám

Brjóstnám er mjög stór aðgerð og nauðsynlegt að vera búin að undirbúa sig vel andlega og líkamlega fyrir aðgerðina. Margrét Lilja þurfti að fara í 6 aðgerðir einu ári í sínu brjóstnámsferli og var því komin með smá rútínu hvernig hún undirbjó sig heima og hvað hún tók með sér á aðgerðardaginn. Hér lýsir Margrét Lilja sinni reynslu varðandi undirbúning.

Undirbúningur fyrir aðgerð:

Þegar ég hef fengið næsta aðgerðardag þá set ég upp smá plan í höfðinu. Ég vil vera sem best upplögð fyrir aðgerðina. Oftast hef ég fengið að vita með 1-3 mánaða fyrirvara um fyrirhugaða aðgerð. Auðvitað er enginn eins og hver og einn þarf að gera það sem er best fyrir sig, en svona reyni ég að undirbúa mig;

Hreyfing - Ég vil vera í mínu besta formi á aðgerðardaginn. Það þýðir ekki að ég fari viku fyrir aðgerð og hleyp á hverju degi, síður en svo. Ég stunda reglulega hreyfingu en passa mig að hafa léttar æfingar síðustu 2 daga fyrir aðgerð. Ég vil ekki vera með strengi á bataferlinu ofan í allt annað.

Andleg heilsa - Jákvæðni skiptir öllu máli. Bæði fyrir og eftir aðgerð reyni ég eftir öllum mætti að vera meðvituð um það að ég ein geti haft áhrif á líðan mína og ég vel að hugsa um góðu hlutina og það jákvæða í kringum mig. Ég reyni að takast á við krefjandi verkefni með jákvæðu hugarfari. Þetta skiptir sérstaklega miklu máli sólahring fyrir aðgerð og dagana eftir aðgerð.

Matarræði - ég reyni að  hugsa vel um mataræðið. Á síðasta ári hef ég gert töluverðar breytingar á mataræðinu hjá mér, en það hefur gerst mjög hægt og er bara eitthvað sem ég hef í huga. Ég reyni að minnka sykur og bæta við grænmeti, ekkert bannað samt nema kannski svona helst svart gos. Tveim vikum fyrir aðgerð hætti ég að taka vítamín og lýsi en það geta alltaf verið aukaefni í svoleiðis sem valda vandamálum, hverjum hefði t.d. dottið í hug að lýsi væri blóðþynnandi og gæti því valdið vandamálum í aðgerðum? Ég gæti alveg farið með vítamínin til læknisins og beðið hann að fara yfir öll innihaldsefnin, en mér finnst bara betra að sleppa þeim.

Aðstaða - Ég fékk rafmagnsrúm rétt fyrir fyrstu aðgerðina. Við höfðum eiginlega ekki pláss fyrir það (erum núna með 3 rúm inni í hjónarherbergi) en ég hefði EKKI viljað vera án þess. Ég hef alla tíð sofið á maganum eða hliðinni, en eftir brjóstnám þá er það ekki hægt. Fyrstu dagana eða jafnvel vikurnar á eftir sef ég í rafmagnsrúminu og ef ég vakna af því mér finnst eins og þurfi að hreyfa mig, þá breyti ég aðeins stöðunni á rafmagnsrúminu og held áfram að sofa. Annað sem ég passa að sé í lagi er t.d. tengi fyrir símann og svo set ég tannburstann minn á sömu hæð og hjónaherbergið er (ég bý á tveimur hæðum). En þá þarf ég ekkert að vera að fara upp og niður stigann að óþörfu  fyrstu dagana eftir að ég kem heim. Ég pasa upp á að hlutir sem ég vil hafa aðgengilegir séu það. Síðan fara alltaf síðustu tveir dagarnir í að þrífa heima hjá mér, þvo rúmfötin o.fl.

Gott að taka með sér upp á spítala:

  • Símabatterí - til að hlaða símann en hafa hann samt nálægt þér. Væri líka nóg að vera með langa hleðslusnúru.
  • Headphone - til að geta hlustað á sögu
  • Skyrtu eða peysu sem er rennd eða hneppt að framan - eitthvað sem er auðvelt að fara í og úr.
  • Þægilegar buxur sem auðvelt er að fara í og úr - þótt aðgerðarsvæðið sé brjóstkassinn þá getur maður verið aumur að nota hendurnar og því gott að það sé ekki vesen að fara í og úr buxunum.
  • Belti eða eitthvað til að festa drenin í - lang flestir ef ekki allir vakna með dren eftir brjóstnám, og gott er að vera búin undir það
  • Súkkulaði - ég hef reyndar ekki gert þetta. En var eiginlega hálf skömmuð fyrir það síðast á vöknun að hafa ekki komið með eitthvað þar sem ég er alltaf með svima og yfirliða vesen, þannig ég bæti því á listann til að taka með næst.