No items found.
Tilgangur Brakkasamtakanna - Brca Iceland er að leitast við að efla fræðslu og rannsóknir á BRCA og veita arfberum og fjölskyldum þeirra nauðsynlega fræðslu og stuðning.
Félagið stendur vörð um hagsmuni BRCA arfbera og beitir sér fyrir eflingu þeirrar þjónustu sem BRCA arfberum stendur eða á að standa til boða.
Samtökin leitast við að stuðla að aukinni kostnaðarþátttöku ríkis við skimun, eftirlit og þær aðgerðir sem BRCA arfberar kjósa að gangast undir vegna ástands síns. Loks leitast félagið við að stuðla að samvinnu við erlend félög með áþekkan starfsgrundvöll.